Skip to content

Month: February 2026

Jesús, konurnar og þriðja vaktin

Í dag er konudagurinn og þá langar mig að nota tækifærið og fjalla um Jesú og konurnar í guðspjöllunum. Mig langar að fjalla um þriðju vaktina og Guðsríki. Mig langar að fjalla um samhljómin í samskiptum Jesú við konurnar í guðspjöllunum.

Fyrsta konan sem kemur upp í hugann er auðvitað María móðir Jesú, ég hugsa um fyrsta kraftaverkið sem Jesús framkvæmdi. Hann var þá staddur í brúðkaupsveislu í Kana í Galíleu ásamt móður sinni og þegar veislan stendur sem hæst kemur í ljós að allt vín er búið. María heyrir þjónanna hvíslast á um málið og hún veit sem er að það er leiðinlegt að verða uppiskroppa með veitingar í góðri veislu og það gæti hæglega varpað skugga á gleði brúðhjónanna. Svo hún talar við Jesú og biður hann um að gera eitthvað en fyrstu viðbrögð hans eru að veitingar í veislu sé nú kannski ekki forgangsverkefni í uppbyggingu Guðsríkis … Lesa meira