Skip to content

Month: April 2026

Fjórar upprisusögur

UPPRISA!
Ég færði grænu plöntuna til í stofunni heima. Hún hafði eiginlega óvart lent á skuggsælum stað þegar við sonur minn fluttum inn í nýja íbúð fyrir um ári. Ég hafði einhvern veginn ekki veitt henni næga eftirtekt, kannski af því hún var ekki á nógu áberandi stað en þegar blöðin voru farin að lúta höfði og sölna færði ég hana til móts við næsta glugga. Nokkrum morgnum síðar þegar ég skreið fram úr rúminu í gamla götótta náttkjólnum mínum að sækja mér kaffi með augun aðeins opin til hálfs tók ég eftir að plantan hafði risið upp. Hún rétti nú stilka sína fram eins og granna handleggi með lófastórum nýgrænum blöðum og það var líkast því að hún væri að blessa heimilið. Ég hafði ekki gert annað en að færa hana á nýjan stað. En stundum er jú upprisan bara nýr staður í nýju ljósi.
UPPRISA!
Ungur faðir sem
Lesa meira