Lesa meira10 ráð til fermingarbarna "/> Skip to content

10 ráð til fermingarbarna

 

  1. Taktu sjálfstæða ákvörðun um að fermast, ekki gera það fyrir prestinn, ömmu og afa, mömmu og pabba eða félagana, gerðu það vegna þess að þig langar til að hafa Jesú sem þinn andlega áttavita í lífinu, það er alltaf hægt að fermast seinna ef það hentar þér ekki núna.
  2. Taktu þátt í undirbúningi fermingardagsins með foreldrum þínum og hafðu skoðanir á öllu sem þau bera undir þig, þannig sýnirðu þeim að þetta sé ekki sjálfsagt og að þú kunnir að meta framlag þeirra.
  3. Vertu á góðum og öruggum skóm við athöfnina, þegar maður er 14 ára hefur maður ekki húmor fyrir því að detta fyrir framan fulla kirkju af fólki.
  4. Farðu snemma í háttinn kvöldið fyrir stóra daginn, þegar maður er ósofinn verður maður kvíðinn og uppspenntur og allt vex manni í augum
  5. Vertu á staðnum, bæði líkamlega og andlega í athöfninni en ekki eins og þú hafir óvart verið dreginn inn í kirkjubygginguna á síðustu stundu og sért að furða þig á þessum viðburði. Það er nefnilega þessi meðvitaða ákvörðun þín sem gerir athöfnina svo merkilega.
  6. Ekki fá þráhyggju yfir einhverjum mistökum sem gerast í athöfninni, ef Guð fyrirliti okkur vegna mistakanna þá hefði hann aldrei gerst maður, þannig að ef það er einhvers staðar vettvangur til að gera mistök þá er það í kirkjunni.
  7. Ekki bera þína veislu og gjafir saman við annarra, við eigum öll eitthvað sem aðrir eiga ekki og öfugt , samanburður og öfund er algjört sjálfskaparvíti.
  8. Vertu meðal gestanna í veislunni og leggðu andrúmsloft væntumþykjunnar á minnið, þegar þú ert orðinn eldri situr það eftir þótt gjafirnar verði komnar upp á háaloft.
  9. Ekki stressa þig of mikið á trúarjátningunni, hún lærist með tímanum, það eina sem þú þarft að vita er að Jesús elskar þig skilyrðislaust, með eða án trúarjátningar
  10. Mundu að kirkjan stendur þér opin hvort sem þér líkar hún eða ekki.
Published inPistlar