Lesa meiraÞað sem ég lærði fyrir fertugt "/> Skip to content

Það sem ég lærði fyrir fertugt

  1. Þótt lífið sé stutt er ekki ástæða til að lifa eins og hver dagur sé hinn síðasti þá verður nefnilega næsti dagur býsna erfiður.
  2. Hættulegasta fólkið er fólkið sem heldur að það geti ekki gert neitt slæmt. Öll erum við fær um að beita ofbeldi og særa, við höfum bara val um hvort við ræktum frekar hið góða eða hið vonda.
  3. Það er fullkomlega eðlilegt að hrífast af öðrum en maka sínum, það er ekki sjéns að einhver sem á annað borð er eða hefur verið í hjónabandi hafi aldrei hrifist af öðru fólki eða látið sig dreyma um annað líf. Tilfinningar eru gangverkið í manneskjunni sem þarf bara reglulega að stilla.
  4. Ef þú notar vín til að vinna á streitu, deyfa sársauka eða flýja sjálfan þig þá ertu mjög líklega alkóhólisti.
  5. Dauðinn er ekki það versta í lífinu. Það versta er að lifa í dauða og vera í engum tengslum við sjálfan sig né aðra.
  6. Að eignast barn er ekki réttur foreldra en að eiga foreldra er réttur hvers barns.
  7. Það er ekkert til sem heitir lágmenning og hámenning, menning er bara menning þar til hún verður dauð kenning.
  8. Maður á aldrei að klára leiðinlega bók bara til að segjast hafa lesið hana, menningarsnobb er tímasóun
  9. Einlægni er völd.
  10. Flugvélar hafa tilhneigingu til að lenda.
Published inHugleiðingar